1. 2.5, 2007
________________________________________________________________________
Már Wolfgang Mixa
Umfjöllun um fjárfestingar
Sjónvarp, auglýsingar og verðbréf
Oft er það svo að þau verðbréf sem mest er fjallað um í samfélaginu eru þau
sem hafa veitt bestu ávöxtun síðustu mánuði og ár. Það merkilega við slíkar
umræður er að oftar en ekki eru það merki um að verðgildi slíkra verðbréfa ná
hæstu hæðum samhliða því að umræðan um þau ná hámarki. Mörgum er
sjálfssagt enn minnisstætt þegar að Kastljós, í upphafi aldarinnar, fékk
sérfræðinga vikulega til að velta fyrir sér bestu kaupin á markaði hverju sinni.
Umræðan í þjóðfélaginu snérist um verðbréf og skjótfenginn gróða. Meðal
félaga sem voru hvað mest fjallað um voru deCODE genetics og OZ. Fyrrnefnda
félagið hefur enn ekki sýnt hagnað og hið síðarnefnda fyrir löngu gjaldþrota.
Margar hlutabréfavísitölur hafa enn ekki náð sömu hæðum og þær voru þá í.
Auglýsingar
Það er jafnan samhengi á milli þess hvað mest er fjallað um hverju sinni og hverskonar
verðbréfaafurðir eru auglýstar hverju sinni. Þó svo að fortíðin mæld í mánuðum sé slök
vísbending um framtíðarávöxtun þá er það staðreynd að í verðbréfageiranum er það
ávöxtun síðustu mánaða sem selur best og því einblína flestar auglýsingar á það sem veitt
hefur bestu ávöxtun síðustu 6 til 12 mánuði (hérlendis leyfa sum fjármálafyrirtæki sér
meira að segja að uppreikna 1 mánaðar ávöxtun í heilt ár til að ná athygli fjárfesta).
Eftirfarandi dæmi sýna að oft hefur það reynst vera (afar) léleg fjárfestingarstefna að
fylgja því sem auglýst hefur verið mest hverju sinni.
Erlendir valréttir
Rétt fyrir aldamót, þegar að erlendar hlutabréfavísitölur hækkuðu nær látlaust, voru
erlendir valréttir auglýstir svo mikið að það kom fyrir að það voru 3 heilsíðuauglýsingar í
Morgunblaðinu með þessari afurð. Ég minnist þess ekki að hafa séð slíka auglýsingu nú í
NordVest verðbréf | Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík | sími 590 9000 | www.nordvest.is
Síða 1/5
2. 2.5, 2007
________________________________________________________________________
mörg ár en þær hefðu verið frábærar fjárfestingar árin 2002 og 2003 þegar að umræðan
um hlutabréf var sem neikvæðust.
Tæknisjóðir
Slíkir sjóðir voru mikið auglýstir, meðal annars í sjónvarpinu, í kringum aldamótin. Þarf
að fara mörgum orðum um ávöxtun þeirra?
Íslensk skuldabréf
Eftir að hlutabréf bæði hér og erlendis höfðu tekið mikla dýfu niður á við höfðu
skuldabréf aftur á móti veitt góða ávöxtun árin 2001 til 2005. Í framhaldi af því fóru
verðbréfafyrirtæki smám saman að einblína á að auglýsa skuldabréfasjóði sem virtust
vera álitlegri kostur en verið höfðu í fjölda mörg ár. Sjálfur stóð ég við gerð einnar
herferðar. Fólk hringdi í framhaldi af því og spurði um væntingar mínar um árið sem var
framundan. Þó svo að þær væru hæfilegar bjartsýnar þá varð ávöxtun næstu 12 mánuði
miklu betri. Þá fyrst dundi auglýsingaherferðir skuldabréfasjóða yfir. Þó svo að ávöxtun
þeirra geti ekki verið lýst sem hræðilegri frá þeim tímapunkti þá er aftur á móti hægt að
fullyrða að hún hafi verið dræm.
Íslensk hlutabréf
Hlutabréfasjóðir sem fjárfestu í íslenskum hlutabréfum voru mikið auglýstir fyrstu
mánuði síðasta árs enda höfðu íslensk hlutabréf veitt einstaka ávöxtun síðustu tvö ár (svo
einstök var ávöxtunin að bandarísk hlutabréf veittu aldrei á tveggja ára tímabili jafn góða
ávöxtun á síðustu öld). Eftir að hlutabréf höfðu, aftur á móti, fallið mikið í sáust slíkar
auglýsingar hins vegar vart lengur.
Það er eðlilegt að velta því fyrir sér í þessu ljósi hvað sé mest auglýst í dag? Samkvæmt
ofangreindu eru það fjármálaafurðir sem fólk ætti í það minnsta að hugsa sig vandlega
um áður en það setur mörg egg í þær körfur.
NordVest verðbréf | Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík | sími 590 9000 | www.nordvest.is
Síða 2/5
3. 2.5, 2007
________________________________________________________________________
Íslenskir valréttir
Það er forvitnilegt að sjá valrétti auglýsta á nýjan leik. Nú eru þeir tengdir við íslensk
hlutabréf, og hafa hækkað aftur í sögulegar hæðir. Höfuðstóllinn tapast ekki en þegar að
hægt er að fá í kringum 13-14% ávöxtun inn á bankabók í dag þá er ljóst að raunveruleg
eign í lok samningstímabils valréttar getur hjaðnað verulega.
Erlend lán (aðallega húsnæðislán)
Rétt er að gera örlítinn formála á þessu. Hér er ekki um almenn verðbréf að ræða en engu
að síður fjármálaafurð. Kannanir gerðar um aldamótin gáfu sterklega til kynna að flestir
töldu hlutabréf vera bestu langtímaávöxtunina. Enda var það svo að flestir á Íslandi sem
tóku þátt í reglubundnum sparnaði, til að mynda séreignalífeyri, settu mestan pening sinn
í hlutabréf. Ekki leið meira en tvö ár áður en sú almenna viska hafði snúist nánast um
180 gráður. Það voru jafnvel dæmi um að fólk flutti fjármagn sitt úr hlutabréfum, þegar
að þau voru miklu verðminni en áður, yfir í tryggari fjárfestingakosti en þó ekki
nauðsynlega betri kosti. Þetta mótaðist að stórum hluta af því að margir höfðu um
nokkurt skeið ávaxtað sitt pund vel í hlutabréfum og aðrir vildu taka þátt í leiknum, oft
með vanmat á áhættu tengdum hlutabréfafjárfestingum.
Mér finnst óþægilega lík þróun vera farin að myndast varðandi húsnæðislán í erlendum
myntum. Í fjöldamörg ár hafa sumir hagnast gríðarlega á því að skuldsetja sig í erlendri
mynt. Þetta tímabil hefur nú varað það lengi að varnaðarorð um gengisáhættu eru farin
að verða sífellt veikari. Bæði eru þeir sem hafa haldið aftur af fólki orðnir leiðir á því að
sjá ráðgjöf sína skila litlu og þeir sem hafa þegið hana farnir að efast um réttmæti hennar,
erlendar lántökur hafa jú verið hagstæð í samfelld 5 ár. Það að erlendar skuldir heimila
hafa aukist um rúmlega 150% síðustu 12 mánuði er vísbending um að margir hafi misst
þolinmæðina á slíkum varnaðarorðum.
Nýlega sá ég sjónvarpsauglýsingu þar sem verið var að bjóða uppá erlend lán til
íbúðakaupa. Nú er það svo að hjá sumum eru aðstæður þannig að slík lán, jafnvel með
NordVest verðbréf | Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík | sími 590 9000 | www.nordvest.is
Síða 3/5
4. 2.5, 2007
________________________________________________________________________
gengisáhættu, eru ekki galin stefna. Það er aftur á móti forvitnilegt að vita hvernig
afstaða fólks í raun verður ef íslenska krónan veikist skyndilega mikið, sem eykur
höfuðstól lánanna.
Tökum dæmi hjón sem taka 90% lán, fjármagnað í erlendri mynt. Eigið fé fólksins í
húsinu eru þá 2 milljónir. Nú gerist hið óvænta að aðeins 12 mánuðum eftir að lánið var
tekið hefur íslenska krónan veikst um 20% og höfuðstóll lánsins hækkað samsvarandi
mikið. Þetta gæti virst vera óhugsandi en ef til vill er skilgreiningin um að slíkt sé óvænt
ekki nákvæm; meiri veiking krónunnar átti sér stað á tímabilinu 2000 til 2001. Í stað þess
að eiga 2 milljónir í húsnæðinu þá skulda þau svipaða upphæð 12 mánuðum síðar. Í slíkri
aðstöðu er líklegt að margir, burtséð frá skynsemi slíkra ákvarðana, umbreyti sínum
erlendum lánum í íslensk lán til að forða sér frá enn frekari skuldasöfnun. Viðhorfið
gagnvart áhættu tengdum erlendum lántökum gæti umbylst með svipuðum hætti og átti
sér stað varðandi hlutabréf fyrir nokkrum árum síðan. Slík viðhorfsbreyting getur í raun
stigmagnað áhrifin því ef fólk fer að greiða upp erlend lán veikist íslenska krónan enn
frekar.
Hvað skal gera
Því miður hef ég ekki áreiðanlega kristalskúlu á borði mínu til að spá fyrir um gengi
íslensku krónunnar. Margir virtir sérfræðingar hafa spáð fyrir um veikingu hennar lengi
vel án þess að slíkt hafi gengið eftir. Slík þróun, það er að slíkar spár gangi seint eftir, á
reyndar við um flesta fjárfestingakosti þar sem fjölbreytni í skoðunum almennings hefur
vikið til hliðar og fara því að verða hluti af almennri umræðu, bæði meðal fólks, í
fjölmiðlum og síðast en ekki síst í auglýsingum. Því er rétt að minna á að túlkun sumra á
sögunni um strákinn sem stöðugt kallaði úlfur, úlfur. Úlfurinn kemur að lokum og þá er
heillvænlegt að vera ekki síðastur í röðinni.
Már Wolfgang Mixa
NordVest verðbréf | Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík | sími 590 9000 | www.nordvest.is
Síða 4/5
5. 2.5, 2007
________________________________________________________________________
NordVest verðbréf
2. maí, 2007
Allar fjárfestingar fela í sér áhættu, þar með talið hugsanlegu tapi höfuðstóls
Gengi hlutabréfa sveiflast oft mikið og ávöxtun í fortíð endurspeglar ekki nauðsynlega framtíðar
ávöxtun. Höfundur umfjöllunar og NordVest verðbréf bera ekki ábyrgð á ákvörðunartöku sem
byggð er á henni. Forsendur sem fram kom í þessari umfjöllun eru byggðar á aðgengilegum
upplýsingum sem höfundur telur vera áreiðanlegar. Sú skoðun sem fram kemur í þessari
umfjöllun endurspeglar skoðun höfundar á þeim tíma sem hún er birt. Skoðanir og spár geta
breyst án fyrirvara, höfundur og NordVest vísa frá ábyrgð varðandi uppfærslur á slíkum
viðhorfum. Skoðanir sem fram koma í þessari umfjöllun eru ekki ætlaðar sem spár um
framtíðarhorfur, trygging um framtíðar ávöxtun eða ráðgjöf varðandi fjárfestingar. Þar sem
fjárfestingarákvarðanir eru byggðar á margvísilegum þáttum, m.a. áhættuviðhorfi fjárfesta, þá er
ekki hægt að reiða sig á að þessar skoðanir séu vísbending um væntar fjárfestingar fyrir hönd
viðskiptavina eða eigin reiknings NordVest. NordVest og viðskiptavinir þess eiga hugsanlega eða
versla með verðbréf sem fjallað er um með beinum eða óbeinum hætti í þessari umfjöllun.
Fjárfestar ættu ávallt að íhuga gaumgæfilega fjárfestingarstefnu, áhættu og kostnað
NordVest verðbréf | Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík | sími 590 9000 | www.nordvest.is
Síða 5/5