71. Vaðfuglar Vaðfuglar eru dýraætur og er langur goggurinn hentugur til að grafa eftir æti í leirum, tjarnarbotnum og jarðvegi. Sumir fuglarnir hafa stuttan gogg og fætur eins og sandlóa og heiðlóa. Vaðfuglar helga sér óðul og verpa pörin stök. Kynjamunur er lítill hjá vaðfuglum, karlfuglinn er þó oft ívið skrautlegri og kvenfuglinn aðeins stærri.