PowerPoint 1.0 kom á markaðin í apríl 1987 og var þá einungis til fyrir Macintosh og einungis í svart/hvítu. Powerpoint 1.0 var notað til að búa til síður með texta og grafík sem síðan var breytt í glærur með ljósritunarvél. Forritið varð vinsælt og skömmu eftir að það kom á markaðinn var það keypt af Microsoft fyrir 14 milljónir dollara.